Skilmálar Icekorea

Fyrirtækjaupplýsingar:

Vefverslun Icekorea.is er rekin af Ozom ehf.
Sími: 820-8957
Netfang: icekorea@icekorea.is
Kennitala: 591114-0500
VSK númer: 118569

Vöruskilmálar:

Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um innsláttarvillur og áskilur Ozom ehf sér rétt til að ljúka ekki viðskiptum hafi rangt verð verið gefið upp.

Greiðsluupplýsingar:

Hægt er að greiða með kreditkorti,  debetkorti, netgiro ofl.
Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar.

Afhendingarskilmálar:

Allar sendingar eru sendar á næsta pósthús nema annað sé tekið fram.
Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og hægt er. Vara er ekki send fyrr en greiðsla hefur borist. Pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.

Vöruskil:

Hjá Icekorea.is er tveggja vikna skilafrestur, nótu eða afrit af vörukaupum þarf að sýna þegar vörunni er skilað, varan þarf að vera í upprunalegu ástandi og innsigli má ekki vera rofið. Hægt er að fá inneignarmiða, nema ef um galla er að ræða þá er hægt að fá endurgreitt. Ef þú vilt skila hafðu þá samband við okkur á facebook eða senda línu á icekorea@icekorea.is

Lög um varnarþing:

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslun Ozom ehf á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

Trúnaður:

  1. Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
  2. Sendingar úr kerfi Verslunar kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir vefverslunnarinnar geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum.